Tix.is

Event info

Forsöluverð 3.500 en 4.500 við hurð.

Hljómsveitin Valdimar er landsmönnum góðkunn. Fjórða breiðskífa sveitarinnar, 'Sitt sýnist hverjum' kom út seint á síðasta ári og vakti verðskuldaða athygli. Lögin 'Of seint', 'Blokkin' og 'Stimpla mig út' hafa í kjölfarið fengið töluverða útvarpsspilun og sveitin spilað á hinum ýmsu stöðum vítt og breitt um landið.

Þótt erfitt geti reynst að útskýra tónlist þeirra er henni best lýst sem rafskotinni indíblöndu með rætur í Americana tónlist, dýnamísk, allt frá rólegum melódíum upp í drífandi og orkumikla kafla þar sem hljómsveitin spilar á fullu blasti sem gerir lifandi flutning sveitarinnar að ógleymanlegri upplifun.

Útgáfutónleikar Valdimar í Háskólabíó síðastliðið haust voru einkar vel heppnaðir og fékk sveitin mikið lof fyrir. Reikna má því með mikilli skemmtun fyrir aðdáendur þessarar frábæru hljómsveitar.

Sveitin ætlar sér að koma við á nokkrum stöðum á landsbyggðinni í ágúst og september og um að gera að tryggja sér miða í tæka tíð þar sem tónleikar Valdimars eru yfirleitt verið mjög vel sóttir og eru miðarnir einnig ódýrari á netinu en við hurð.. Viðkomustaðirnir eru eftirfarandi:

16. ágúst - Segull67 á Siglufirði
17. ágúst - Græni Hatturinn (miðasala hérna )
23. ágúst - Bæjarbíó (miðasala á www.baejarbio.is )
7. september - Skyrgerðin í Hveragerði
19. september - Midgard base camp á Hvolsvelli
20. september - Hafið, Hornafirði
21. sept - Valhöll Eskifirði

"Frábær konsert og aldrei fyrr hefur hljómburðurinn í Háskólabíói verið fullkominn í mínum eyrum - þetta var sannkallað fimm stjörnu gigg." - Ásgeir Eyþórsson tónlistarspekúlant

"Þegar ég horfði á þessa hljómsveit í Háskólabíó í gær, samspilið og stemninguna gat ég ekki annað en hugsað um hversu dýrmætt það er að sjá svona hljómsveit." - Kristján Freyr tónlistarmaður