Akasha er tíðnisvið sem geymir orkulegar upplýsingar um allt sem sálin þín hefur gert í fortíð, nútíð og framtíð í gegnum öll líf og allar víddir. Það tengir okkur við þá endalausu möguleika sem við búum yfir í tíma og rúmi, línulega og ólínulega. Vertu með í ferðalagi inn að rótum í gegnum tónheilun, virkjun þinnar eigin raddar og djúpa slökun. Skynjaðu og skildu það sem orð ná ekki yfir. Kristalalkemíuskálar, gong og fleiri hljóðgjafar verða okkur til aðstoðar sem og hjartaopnandi og heilagt kakó.
Athöfnin kostar 5000 krónur. Takmarkað pláss er í boði og því nauðsynlegt að bóka pláss fyrirfram. Ef einhverjar spurningar vakna er þér velkomið að hafa samband í gegnum tölvupóst á kamilla@kako.is.
Kakóathöfnina leiðir Kamilla Ingibergsdóttir yogakennari og tónheilari en hún hefur mikið kannað heilunarkrafta Akasha. Hún hefur unnið með heilagt kakó um árabil en það hefur reynst henni dásamlegur hjálpari í gegnum ýmis verkefni í lífinu. Hér má lesa meira um Kamillu.
Kakóið sem við drekkum frá regnskógum Guatemala er svokallað “ceremonial grade cacao” og sannkölluð ofurfæða. Kakó er blóðflæðisaukandi, hefur jákvæð áhrif á úthald og orku, minnkar bólgur, ýtir undir framleiðslu á gleðiboðefninu serótónín, lækkar streituhormónið kortisól og örvar vellíðunarstöðvar í heilanum og framleiðslu á endorfíni. Hér má lesa nánar um kakó.
Nokkur góð ráð fyrir athöfn:
-Borðaðu létta máltíð fyrir athöfn og helst nokkrum tímum áður en hún hefst. Það er líka í boði að fasta.