Tix.is

Event info

Tríó skipað: Sigrúnu Hjálmtýsdóttur sópran, Önnu Guðnýju Guðmundsdóttur píanó og Sigurði Ingva Snorrasyni klarinettu.

 

Efnisskráin hverfist í kringum hið þekkta lag eftir Schubert: Hjarðsveinninn á klettinum fyrir sópran, klarinettu og píanó. Klarinettan tjáir bergmálið sem endurkastast þegar Hjarðsveinninn (sópan) syngur yfir fjöll og dali til að reyna að ná til unnustunnar. Einnig flytjum við fallega rómönsu eftir Schubert fyrir sömu þrjú.

 

Ýmsar hjarðvísur fylgja í kjölfarið, íslenskar og erlendar ásamt nokkrum “blómalögum” og þessum hluta lýkur á hinu þekkta “La Vie en Rose” sem Edith Piaf gerði frægt.

 

Klarinettan og píanóið flytja þrjú lög eftir George Gershwin, þar á meðal hið þekkta Summertime. Þá koma tvær syrpur með lögum eftir Jóhann G. Jóhannnsson við ljóð eftir Þórarinn Eldjárn annars vegar og Halldór Laxness hins vegar. Þórarinn er ærslabelgur og kann sannarlega að setja saman vísur sem auðvelt er að læra og hlæja að. Laxness á þarna þekkt ljóð eins og Bráðum kemur betri tíð með blóm í haga.

 

Tónleikunum lýkur á tveimur þekktum slögurum: Over the Rainbow (úr Galdrakarlinum í Oz) og þakklætisóðnum til tónlistarinnar eftir ABBA.

 

Það er Tónlistarfélag Akureyrar sem stendur fyrir þessum tónleikum í samstarfi við Félag íslenskra tónlistarmanna. Akureyrarbær og Menningarfélag Akureyrar eru stuðningsaðilar Tónlistarfélags Akureyar.