Tix.is

Event info

ÞÚ MÁTT EKKI láta þig vanta á geggjaða Föstudagspartísýningu á hinni óborganlegu grínmynd STELLU Í ORLOFI – 25. ágúst kl.21:00 – eins og vanalega verður sjoppan stútfull af sætindum og barinn fljótandi af partíveigum sem að sjálfsögðu má taka með inní salinn!

Fru Stella, det er blod! Hin ógleymanlega Stella í orlofi fjallar um Stellu og baráttu hennar við geðilla karla, tryllt börn, alkóhólista, flugmenn, Lionsklúbbinn Kidda, danskar drósir og laxeldi. Myndin er nú komin á stafrænt form, rúmlega þrjátíu árum eftir frumsýningu.

Ein ástsælasta íslenska gamanmynd allra tíma með þeim Eddu Björgvinsdóttur, Gesti Jónassyni, Þórhalli Sigurðssyni (Ladda) í aðalhlutverkum, í leikstjórn Þórhildar Þórleifsdóttur eftir handriti Guðnýjar Halldórsdóttur.