Tix.is

Event info

Einstakt leikverk um Samúel Jónsson alþýðulistamann í Selárdal Arnarfirði. Á þessum afskekkta stað byggði hann upp sína ævintýraveröld sem skákar öllum Disneylöndum. Hann toppaði svo allt þegar hann byggði kirkju. En hvað átti hann að gera hann vantaði jú húsnæði undir altaristöfluna sína og hvaða húsnæði hentar einmitt betur en kirkja. Samúel hefur haft viðurnefnið Listamaðurinn með barnshjartað og þannig er einmitt nafn leiksins tilkomið. Leikurinn verður sýndur í miðju ævintýraveraldar Samúels nefnilega í hans einstöku kirkju.

 

Höfundur/Leikari: Elfar Logi Hannesson

Búningar/Leikmunir/Leikstjórn: Marsibil G. Kristjánsdóttir