Tix.is

Event info

HVORT ER MEIRA VIRÐI: 50 LEGGINGS ÚR GJAFALEIK Á INSTAGRAM EÐA 50 POKAR AF GULLAUGA?

Kartaflan fjölgar sér með spírum í móðurlegg og er ófær um að tjá sig. Hún er stolt jarða sinna, hún er kölluð Keisari eða Blálandsdrottning, Premiere eða Eyvindur nú eða einfaldlega Helga, eftir ræktunarkonu sinni Helgu Gísladóttur frá Unnarsholtskoti í Hrunamannahreppi. Komin frá frönskum sjómönnum sem skildu eftir sig blátt kartöfluútsæði og brún augu austur á Berufirði. Fyrir norðan er hún rauð og harðger og vel fallin til suðu eða í salat.

Sviðslistahópurinn CGFC leggur af stað í ferðalag með kartöfluna sem leiðarvísi í tilraunakenndu sviðsverki. Hvað gerist þegar hópurinn sendir óvæntan tölvupóst til Þykkvabæjar? Hvort er meira virði: 50 leggings úr gjafaleik á Instagram eða 50 pokar af Gullauga?

Ýr Jóhannsdóttir, Hallveig Kristín Eiríksdóttir, Halldór Eldjárn, Birnir Jón Sigurðsson og Arnar Geir Gústafsson