ER ALLUR HEIMURINN TIL SÖLU?
Prófessor nokkur kemur á sveitasetur látinnar eiginkonu sinnar með seinni konu sína, hina ungu og ómótstæðilegu Jelenu. Dóttir prófessorsins af fyrra hjónabandi og Vanja, bróðir fyrri konunnar, hafa lagt á sig ómælda vinnu í gegnum tíðina við að sinna búinu. En nú er prófessorinn orðinn gamall, hefur allt á hornum sér og hyggur á róttækar breytingar. Örvænting og vonleysi heltekur Vanja því átakamikið uppgjör er óumflýjanlegt.
Vanja frændi er eitt af stóru meistaraverkum Antons Tsjékhovs - og af mörgum talið það skemmtilegasta. Þrátt fyrir brostnar vonir og sorg er það stútfullt af húmor og náttúrulegum léttleika. Hér takast á mismunandi viðhorf til lífsins; vellystingar og græðgi á móti umhyggju fyrir jörðinni og náttúrunni. Hvernig eigum við að lifa áfram þegar sársaukafullur sannleikurinn um tilgang okkar og stöðu blasir við? Vanja frændi er eitt af mest leiknu leikritum Tsjékhovs og birtist hér í leikstjórn Brynhildar Guðjónsdóttur sem stýrði hinni vinsælu sýningu, Ríkharður III, á síðasta leikári.
Höfundur Anton Tsjékhov
Þýðing Gunnar Þorri Pétursson
Leikstjórn Brynhildur Guðjónsdóttir
Leikmynd Börkur Jónsson
Búningar Filippía Elísdóttir
Lýsing Björn Bergsteinn Guðmundsson
Tónlist Bjarni Frímann Bjarnason
Leikgervi Elín Sigríður Gísladóttir
Hljóð Þórður Gunnar Þorvaldsson
Leikarar
Arnar Dan Kristjánsson, Halldór Gylfason, Hilmir Snær Guðnason, Jóhann Sigurðarson, Katrín Halldóra Sigurðardóttir, Margrét Helga Jóhannsdóttir, Sigrún Edda Björnsdóttir, Unnur Ösp Stefánsdóttir, Valur Freyr Einarsson,
Frumsýning 11. janúar 2020