Tix.is

Event info

Þessi vinsæli gamanleikur hefur aldrei verið fyndnari

Hjónakornin Benedikt og Þórunn skella sér í bústaðinn í Eyjafirði en hvort með sitt leyndarmálið í farteskinu. Hann hugsar sér gott til glóðarinnar þegar hún hyggur á heimsókn til móður sinnar og býður því bæði viðhaldinu og vini sínum til veislu en allt í einu snýst eiginkonunni hugur og ákveður án fyrirvara að vera um kyrrt. Þá hitnar hratt í kolunum og þegar veisluþjónustan bætist í hópinn ætlar beinlínis allt um koll að keyra. Hver bauð hverjum í mat og til hvers? Hver er að halda við hvern og af hverju? Og hvað er veisluþjónustan í raun og veru að bjóða upp á?

Þessi sprenghlægilegi og vinsæli gamanleikur hefur farið algjöra sigurför um heiminn og lagt London, París, New York og Reykjavík að fótum sér. Gísli Rúnar og Bergur Þór hafa uppfært og tímastillt verkið upp á nýtt til að kitla hláturtaugarnar enn meira.

 

Höfundur Marc Camoletti

Íslenskun Gísli Rúnar Jónsson

Leikstjórn Bergur Þór Ingólfsson

Leikmynd Petr Hlousek

Búningar Stefanía Adolfsdóttir

Lýsing Þórður Orri Pétursson

Leikgervi Guðbjörg Ívarsdóttir

Hljóð Þorbjörn Steingrímsson

Leikarar

Haraldur Ari Stefánsson, Jörundur Ragnarsson, Katrín Halldóra Sigurðardóttir, Sigurður Þór Óskarsson, Sólveig Guðmundsdóttir, Vala Kristín Eiríksdóttir.

Frumsýning 4. október.