Tix.is

Event info

Verk norska listamannsins Thorbjörns Egners hafa verið samofin starfi Þjóðleikhússins allt frá því að Kardimommubærinn var frumsýndur hér árið 1960. Skáldskapur Egners rataði beint að hjarta íslenskra barna og Kardemommubærinn og Dýrin í Hálsaskógi hafa verið sett á svið á Stóra sviði Þjóðleikhússins reglulega allar götur síðan, enda verður hver kynslóð að fá að sjá sinn Kardemommubæ! Verkið er nú sett upp í Þjóðleikhúsinu í sjötta sinn, og er við hæfi að það sé afmælissýning Þjóðleikhússins á 70 ára afmæli þess, enda hefur Þjóðleikhúsið alla tíð lagt sérstaka áherslu á veglegar barnasýningar. Og eins og við vitum þá talar Egner til barna á öllum aldri!

Kardemommubær er hreint indæll bær, fullur af skemmtilegum dýrum og litríkum íbúum. En þrennt ógnar þó friðsældinni í bænum, þrír kostulegir ræningjar, ógurlega ljónið þeirra sem elskar mjólkursúkkulaði og hin ráðríka og skapstygga Soffía frænka! Þegar ræningjarnir láta sér detta í hug að ræna sjálfri Soffíu frænku til sjá um húsverkin færist nú heldur betur fjör í leikinn. Fjöldi leikara, barna og tónlistarmanna tekur þátt í þessari bráðskemmtilegu og kraftmiklu sýningu, þar sem yndislegu sönglögin hans Egners gleðja jafnt ung og gömul hjörtu!