Tix.is

Event info

Tónlistarkonan Bríet skaust hratt upp á stjörnuhimininn árið 2018 og hefur í kjölfarið spilað vítt og breitt bæði hérlendis og erlendis. Verðlaun sem söngkona ársins á Hlustendaverðlaununum og bjartasta vonin á íslensku tónlistarverðlaununum gefa til kynna að framtíðin sé einstaklega björt hjá þessari frábæru söngkonu.


Í lok maí hélt hún tónleika með öðruvísi sniði en hún er vön á kaffi Flóru í Reykjavík þar sem hún sagði frá því hvernig hún fór frá því að spila á börum Reykjavíkur í að troða upp á stórum tónlistarhátíðum í Evrópu. Þeir tónleikar þóttu einkar vel heppnaðir og var gjörsamlega troðfullt út að dyrum.


Nú hefur hún ákveðið að endurtaka leikinn í Þorlákshöfn á Hendur í höfn þann 6. júlí og spila sín uppáhalds lög í bland við eigið efni. Þetta er kvöldstund sem enginn tónelskandi má missa af!


Tónleikar hefjast 21:00