Tix.is

Event info

Eldborg verður skipt upp í þrjú 500 manna sóttvarnarhólf, ekki er gerð krafa um neikvætt hraðpróf. Grímuskylda er á viðburðinum en veitingasala verður opin í sóttvarnarhólfum. Gestir eru hvattir til að viðhafa einstaklingsbundnar sóttvarnir í hvívetna og gæta að fjarlægðarmörkum í almenningsrými.

Íslandsvinirnir Smokie mæta þann 2. október 2021 í Eldborg og flytja þar sín vinsælustu lög

Smokie var ein vinsælasta hljómsveit áttunda áratugarins og átti smelli eins og „Living Next Door to Alice“, „Lay Back in the Arms of Someone“ „Don't Play Your Rock'n'Roll to Me“ og „Needles andPins”.

Að vanda spila þeir öll sín vinsælustu lög á þessum tónleikum.

Athugið að það verða eingöngu einir tónleikar en síðast þegar Smokie héldu tónleika hér komust færri að en vildu!

Umsjón: Dægurflugan

Nokkur snilldar lög með Smokie:

Living Next door to Alice.
https://www.youtube.com/watch?v=-XxGf4KAWPs

Lay Back In The Arms Of Someone
https://www.youtube.com/watch?v=Z8O7LHpMSjI