Tix.is

Event info

Plata Bítlanna - Abbey Road kom út þann 26. september árið 1969 og því eru 50 ár liðin frá því þetta meistaraverk Bítlanna leit dagsins ljós. Í tilefni af stórafmælinu ætlar strákarnir í Dúndurfréttum að flytja Abbey Road í heild sinni í Eldborg núna í haust. Dúndurfréttamenn eru allir sannir Bítlaaðdáendur og sönnuðu enn og aftur snilli sína þegar þeir tóku nokkur lög Bítlanna fyrir troðfullu húsi í Eldborg árið 2017 á Classic Rock tónleikum þeirra.

Abbey Road kom út, eins og áður sagði, árið 1969 og var í raun síðasta plata Bítlanna. Let It Be kom út seinna en upptökum á þeirri plötu var lokið áður en vinnan hófst við Abbey Road. Fór hún rakleiðis á toppinn í flestum löndum heims og var t.d. í 17 vikur í efsta sætinu í Bretlandi. Platan hefur nú selst í yfir 30 milljónum eintaka og er enn að seljast gríðarvel.

Það verður því enginn sannur Bítlaaðdáandi svikinn af að mæta í Eldborg föstudaginn 27. september þar sem andi Bítlanna mun svífa yfir salinn.