Tix.is

Event info

Bonnie og Clyde íslenska söngvaskáldageirans, þau Svavar Knútur og Kristjana Stefáns hyggjast þeysast um landið í júlí næstkomandi á sinni árlegu sumartónleikaferð undir yfirskriftinni: Út um allt!

Kristjana og Svavar Knútur munu á ferð sinni heimsækja alla helstu landsfjórðungana og kynda undir sumarfiðringi landans með húmor og hlýju, krúttlegum kvöldsöngvum, angurværum Abbalögum og sígildum söngperlum. Þá munu sagðar sögur, lesin ljóð og klassísk íslensk kvöldvökustemmning höfð í hávegum. Það verður stutt í hláturinn og líka í tárin, enda víða komið við í lystigarði mannlegrar tilvistar.


Kristjana og Svavar hafa síðan 2008 haft unun af því að syngja saman dúetta og komið fram víða um land við gríðargóðar undirtektir. Þau gáfu út dúettaplötuna Glæður árið 2011 sem er löngu uppseld hjá útgefanda. Miðaverð er kr. 4.000 og frítt fyrir börn 14 ára og yngri