Tix.is

Event info

Drengjakór íslenska lýðveldisins er hópur glaðbeittra drengja á ýmsum aldri, sem hafa getið sér gott orð fyrir hressandi söng, glaðværð og einstakan anda á sínum skemmtunum. Kórinn lýkur nú tíunda starfsári sínu með tveimur vorskemmtunum. Í Salnum í Kópavogi 10. maí kl. 20:00 og í veislusal Vals að Hlíðarenda 17. maí kl. 20:00. Haft hefur verið að orði, að það sé stórkostlega ávanabindandi að mæta á skemmtanir drengjanna. Að þessu sinni mun veraldarundrið Laddi koma fram með drengjunum. Í ríflega hálfa öld hefur Laddi átt sérlega farsælan feril á flestum sviðum skemmtanaiðnaðarins. Þetta mun þó vera í fyrsta sinn í alheimssögunni sem hann syngur með drengjakór.