Tix.is

Event info

Einstakur viðburður fyrir allar konur í upplýsingatækni. Þétt dagskrá með fræðandi fyrirlestrum þar sem við eflum tengslanetið og njótum botnlausrar gleði.

 

HVENÆR: Fimmtudaginn 9. maí kl. 12:30- 19:00

HVAR: Iðnó, Vonarstræti Reykjavík

12:30 - Húsið opnar

 

13:00 - Ávarp ráðherra

Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir, dómsmála-, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra

 

13:10 - Hlutverk stjórnandans í tækniumhverfinu
Birgitta Strange, IoT Innovation Manager hjá Marel á Íslandi

Hvernig er að koma inn sem nýr stjórnandi í tæknifyrirtæki? Hvað er spennandi við hlutverkið? Hvað er erfitt? Hvernig náum við árangri?

 

13:40 - Valkyrja í eigin lífi

Ragnhildur Ágústsdóttir, sölustjóri samstarfsaðila hjá Microsoft á Íslandi

Hvatningaóður til kvenna í tæknigeiranum sem byggir á persónulegri reynslu Ragnhildar af mótlæti í starfi og hvernig snúa megi vörn í sókn. Hagnýtt og persónulegt erindi sem er til þess fallið að fylla okkur innblæstri og orku til frekari afreka.
 

14:10 - Stafrænar konur!

Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir, stofnandi Kara Connect

Tækifærin eru kvenna í tækni. Á sama tíma og tækni breytir öllum störfum eru allt of fáar konur að grípa tækifærin. Hvað getum við gert?

 

14:40 - Kaffihlé

15:00 - Elín Gränz, einn af stofnendum Vertonet og kyndilberi könnunar um stöðu kvenna í upplýsingatækni mun fara yfir fæðingu hennar. Í framhaldi fer Lydía yfir niðurstöðurnar.
 

15:10 - Hver er staða kvenna í upplýsingatækni á Íslandi?

Lydía Ósk Ómarsdóttir, ráðgjafi hjá Intellecta ehf.

Farið verður yfir niðurstöður könnunar sem Intellecta gerði í samstarfi við Vertonet um stöðu kvenna í upplýsingatækni á Íslandi. Hvert er hlutfall kvenna í upplýsingatæknistörfum á Íslandi? Hver er upplifun kvenna af störfum í upplýsingatækni og hvernig getum við hvatt fleiri konur til þess að starfa í geiranum?

 

15:40 - Pallborðsumræður um könnun Intellecta

Í pallborði sitja: Dr. Ari Kristinn Jónsson rektor HR, Sesselja Vilhjálmsdóttir framkvæmdastjóri Tagplay og Ragnheiður H. Magnúsdóttir forstöðumaður framkvæmda hjá Veitum sem jafnframt leiðir umræðuna.

 

16:00 - Veiting viðurkenninga

 

16:30-19:00 - Teygjum á tengslanetinu

 

Léttar veitingar í lok dags.

 

Fundarstjóri: Sigríður Mogensen, sviðsstjóri hugverkasviðs Samtaka iðnaðarins

 

Þátttökugjald er 3.900 krónur, skráning og greiðsla fer fram hér á tix!