Tix.is

Event info

Manino í samstarfi við Samtök iðnaðarins standa fyrir ráðstefnu um leiðir fyrir íslensk framleiðslufyrirtæki til að bæta samkeppnishæfni á tímum tækniframfara og krefjandi starfsumhverfis. Sérstakir gestir ráðstefnunnar eru:

Jim Womack upphafsmaður straumlínustjórnunar (e. lean). Höfundur metsölubókanna The Machine That Changed the World og Lean Thinking sem ollu byltingu í stjórnun fyrirtækja um allan heim.

Karl Wadensten eigandi bandaríska framleiðslu- og fjölskyldu- fyrirtækisins Vibco.
Eftir að hafa staðið frammi fyrir alvarlegum vanda í rekstri réðst hann í breytingar á rekstri og sagði sóun innan fyrirtæksins stríð á hendur.

Bret Watson er einn af forstjórum alþjóðlega norska fyrirtækisins Jötul.
Fyrirtækið hefur á síðustu árum náð eftirtektaverðum árangri með því að innleiða stöðugt umbótaferli í sína framleiðslu. Toyota notar m.a. Jötul sem dæmi um vel heppnaða innleiðingu lean aðferðanna.

Dagskrá ráðstefnunnar

12:30-12:45 Opnunarræða Samtaka Iðnaðarins Sigurður Hannesson framkvæmdastjóri SI

12:45-13:15 Hvað er lean og hvernig hjálpar það iðnaðinum?   Jim Womack

13:15-13:45 Samkeppnisforskot með lean – Bret Watson

13:45-14:15 Förum í stríð við sóun! – Karl Wadensten

14:15-14:30 Umbylting hjá Hringrás – Daði Jóhannesson

14:30-15:00 Kaffipása 15:00-15:30 Lean er vaxtarstefna – Bret Watson

15:30-16:00 Við vinnum þetta með teymum – Karl Wadensten

16:00-16:30 Lean á tímum óvissu og tæknibreytinga – Jim Womack

16:30-16:45 Ákall um aðgerðir!   Pétur Arason Manino lokar ráðstefnunni

Maríanna Magnúsdóttir Chief Happiness Officer hjá Manino er fundarstjóri ráðstefnunnar.

Þriðudaginn 21. maí frá 12:30-17:00.

Miðaverð er 25.000 kr. og 21.500 kr. fyrir aðila Samtaka Iðnaðarins,

Allar spurningar og fyrirspurnir á events@manino.is