Erla Mist og Fjórir beinir í baki bjóða uppá notalega kvöldstund í Hömrum. Fluttir verða þekktir og minna þekktir djass standardar í bland við frumsamið efni eftir hljómsveitarmeðlimi.
Erla Mist Magnúsdóttir útskrifast vorið 2019 sem djass-söngkona frá Tónlistarskóla FÍH og er að stíga sín fyrstu skref í tónlistarheiminum á Íslandi. Erla hóf nám sitt í djasssöng við Tónlistarskólann á Akureyri undir leiðsögn Þórhildar Örvarsdóttur haustið 2014 en haustið 2016 hóf hún nám við Tónlistarskóla FÍH þar sem hún hefur notið leiðsagnar Guðlaugar Drafnar Ólafsdóttur.
Hljómsveitina skipa:
Tumi Torfason á trompet
Kristófer Hlífar Gíslason á gítar
Arnar Jónsson á bassa
Tryggvi Þór Skarphéðinsson á trommur
Verkefnið er styrkt af Verðandi listasjóði