Tix.is

Event info

Ragnar Zolberg - Uppklapp #6

Ragnar Zolberg kemur fram ásamt hljómsveit á Uppklappi #6. Ragnar hefur komið víða við, fór fyrir hljómsveitinni Sign á árum áður, var í sænska metalbandinu Pain of Salvation en kemur nú fram með hljómsveit og flytur eigin lög.

MIÐASALA HEFST MIÐVIKUDAGINN 10. APRÍL KL. 10 Á TIX.IS 

Einungis 100 miðar í boði

Miðaverð kr. 1.990,- en aðeins 1.490,- ef greitt er með Aur

Tónleikarnir fara fram í Lágmúla þann 24. apríl kl. 20.30. Húsið opnar kl. 20.

Uppklapp er ný tónleikaröð þar sem íslenskt listafólk kemur fram, með nýjum og persónulegum hætti. Auk þess að flytja sína eigin tónlist sitja þau fyrir svörum og segja okkur meðal annars frá lögunum sem þau hafa valið inn á Tónlistann þá vikuna. Við fáum þannig að skyggnast inn í hugarheim ólíkra listamanna og kynnumst tónlistinni þeirra, um leið og við fáum að vita hvað veitir þeim innblástur og hver uppáhalds lögin þeirra eru.

Inni á Tónlistanum kynnir listafólk einnig sína vinatóna sem viðskiptavinir Nova geta sett upp hjá sér. Vinatónar eru tónar sem vinir þínir heyra þegar þeir hringja í þig.

Nova elskar tónlist af öllu hjarta og hefur frá upphafi lagt mikið upp úr því að rækta grasrótina hér heima. Allur ágóði af miðasölunni rennur til listamannsins hverju sinni sem og allar tekjur af sölu vinatóna. Með því að mæta í Lágmúlann eða að sækja þér vinatón leggur þú þitt af mörkum og styður við íslenska tónlist. Aðeins 100 miðar eru í boði hverju sinni.