Tix.is

Event info

Fimmtudagskvöldið 4. apríl kl. 20 mun Guðrún Nordal ræða bók sína Skiptidaga. Nesti handa nýrri kynslóð, sem kom út á síðastliðnu hausti. Kynslóðin sem nú vex úr grasi horfir inn í framtíð sem verður gjörólík okkar samtíma. Umbyltingar síðustu ára breyta ekki aðeins samfélagi okkar og umverfi, heldur okkur sjálfum og sambandi okkar hvert við annað og þar með við fortíðina og formæður okkar og forfeður. Samsetning þjóðarinnar breytist líka ört og við þurfum að taka vel á móti þeim sem hingað koma svo að þau verði virk í samfélaginu. Hvernig munum við skilgreina okkur? Hvernig verður samfélag okkar, menning og tunga eftir 30 ár? 

Guðrún fær til sín góða gesti til að bregðast við, Sigríði Hagalín rithöfund, Tatjönu Latinovich formann Innflytjendaráðs og Óttar Proppé verslunarstjóra Bóksölu stúdenta og tónlistarmann.

Veitingahúsið í Hannesarholti er opið fyrir kvöldverð á undan kvöldstundinni. Borðapantanir í síma 511-1904 og á hannesarholt@hannesarholt.is