Tix.is

Event info

Þann 31 maí nk. munu upprunalegir liðsmenn hinnar goðsagnakenndu hljómsveitar EIK rifja upp tímabilið frá 1975 til 1977, þegar hljómsveitin var upp á sitt besta, og leika lög af hljómplötunum Speglun frá 1976 og Hríslan og Straumurinn frá 1977, ásamt eldra efni, en báðar þessar plötur fengu mikið lof gagnrýnenda og unnenda góðrar tónlistar þegar þær litu dagsins ljós og var EIK meðal annars kosin hljómsveit ársins 1976 af Íslenskum blaðamönnum. Enn eru allir liðsmenn EIK starfandi við tónlist og hafa verið önnum kafnir undanfarin ár við að setja fingraför sín á Íslenska tónlistarsögu. Og nú skal blásið til veislu, og til að gera útkomuna sem allra besta hafa bæst í hópinn 4 söngvarar og auka-hljóðfæraleikarar. Það verður enginn unnandi góðrar tónlistar svikinn af þessari tónlistarveislu EIKARINNAR.