Tix.is

Event info

Vegna mikillar eftirspurnar hefur verið ákveðið að bæta við aukatónleikum 5. apríl kl. 23:00.

Aukatónleikar fara í sölu 20. mars kl. 11. 

Notast verður við biðraðakerfi sem opnar kl. 10.30, viðskiptavinum verður úthlutað stað í röðinni af handahófi þegar salan hefst kl.11. 


Baggalútur á trúnó
Í tilefni af 5 ára afmæli Hljómahallar

Hljómsveitin Baggalútur verður á trúnó í Hljómahöll þann 5. apríl en þann dag verða fimm ár liðin frá opnun Hljómahallar.

Baggalút þarf ekki að kynna fyrir neinum en óhætt er að lofa mikilli skemmtun með vönduðum hljóðfæraleik.

Tónleikaröðin Trúnó hefur slegið í gegn í Hljómahöll undanfarin misseri. Hugmyndin á bakvið tónleikaröðina er sú að halda risastóra tónleika þar sem engu er til sparað en halda þá á minnsta sal Hljómahallar sem tekur aðeins 100 gesti í sæti. Þá eru listamennirnir sem koma fram á tónleikaröðinni yfirleitt vanari að spila fyrir töluvert stærri hóp áhorfenda.

Ekki missa af þessu einstaka tækifæri að sjá Baggalút í návígi.

Tónleikarnir fara fram á afmælisdegi Hljómahallar föstudagskvöldið 5. apríl kl. 20:00. Húsið opnar kl. 19:00.