Tónlistarskóli og Tónlistarfélag Ísafjarðar fagna í vetur sínu sjötugasta starfsári og af því tilefni verða haldnir glæsilegir hátíðartónleikar í Langholtskirkju 24. mars klukkan 14.
Ungversk kammersveit, hátíðarkór Tónlistarskóla Ísafjarðar og einsöngvarar sem allir eru fyrrum eða núverandi nemendur skólans auk kennara flytja fjölbreytt létt og skemmtileg verk, meðal annars eftir Strauss, Brahms, Bernstein, Lèhar, Kalman, A. L. Webber og fleiri.
Einsöngvarar:
Aron Ottó Jóhannsson, söngnemi við Tónlistarháskólann í Szeged
Herdís Anna Jónasdóttir, óperusöngkona
Ingunn Ósk Sturludóttir, skólastjóri og söngkona
Melkorka Ýr Magnúsdóttir, söngnemi við Söngskóla Sigurðar Demetz
Pétur Ernir Svavarsson, nemi við Tónlistarskóla Ísafjarðar
Sigríður Salvarsdóttir, söngnemi við Listaháskóla Íslands
Sigrún Pálmadóttir, óperusöngkona og söngkennari
Þórunn Arna Kristjánsdóttir, leik- og söngkona
Stjórnandi hátíðarkórs:
Beata Joó
Stjórnandi kammersveitar:
Ferenc Szecsödi