Tix.is

Event info

Reynir Hauksson gítarleikari heldur einleikstónleikaferð um Ísland í byrjun apríl. Á efnisskránni verða þekkt verk úr heimi Flamenco tónlistar í bland við eigin tónsmíðar.

Reynir býr í Granada, Spáni og starfar þar sem Flamenco gítarleikari. Reynir hefur stundað það síðustu ár að halda eina einleikstónleikaferð um Ísland ár hvert til að kynna þetta magnaða listform fyrir Íslendinga.

Tónleikar hefjast klukkan 20:30 og standa í rúman klukkutíma með hléi.