Tix.is

Event info

Leikfélagið Verðandi í FG setur nú á svið í fyrsta skiptið á Íslandi, söngleikinn CLUELESS! Söngleikurinn er byggður á vinsælu 90´s rómatísku gamanmyndinni Clueless þar sem Cher og vinir hennar gefa okkur góða innsýn í það hvernig er að vera 16 ára unglingur í Berverly Hills í Los Angeles. Við fáum að fylgja Cher og vinum hennar í gegnum þann tilfinningarússíbana sem fylgir því að vera ungur og ástfanginn.


Leikgerð og leikstjórn er í höndum Önnu Katrínu Einarsdóttur, danshöfundur og aðstoðarleikstjóri er Sara Margrét Ragnarsdóttir. Texta og lagahöfundur er tónlistarkonan Hildur Kristín Stefánsdóttir, betur þekkt undir tónlistarnafninu Hildur. Skemmtilegur söngleikur með grípandi tónlist og flottum dansatriðum sem allir Clueless aðdáendur og allir þeir sem elska að hafa gaman ættu að sjá! Komdu með okkur í ferðalag til Beverly Hills og árið er 1995!


Nánari upplýsingar eru á samfélagsmiðlum - Verðandi FG.