Leikfélag Borgarholtsskóla setur upp ævintýrið Hans&Gréta 14+ í Hlöðunni, Gufunesbæ. Í þessari 14+ útgáfu förum við með ykkur í gegnum ljótleikann í verkinu en lofum um leið ómótstæðilegri skemmtun! Miðasala hefst mánudaginn 11. febrúar klukkan 12:00 á Tix.is
Tryggið ykkur miða á þessa frábæru skemmtun sem fyrst því þetta verður SOLD OUT show!
Leikstjóri og handritshöfundur: Ingi Hrafn Hilmarsson
Uppsetning: Leikfélag Borgarholtsskóla
Athugið að sýningin er bönnuð börnum yngri en 14 ára þar sem sum atriði í sýningunni eru ekki við hæfi barna.
Hægt er að kaupa fjölskyldutilboð ef keypt er 4 miða eða fleiri! þá er miðinn á 2.990,-
ATHUGIÐ að mikið af blikkljósum eru í sýningunni!