Leikkonan og uppistandarinn Þuríður Elín Sigurðardóttir eða Ebba Sig eins og hún kallar sig fór óvart út í uppistand fyrir ári síðan á Kaffi Laugalæk en hefur nú fært sig í miðbæinn í kjallarann á Hard Rock. Hún byggir uppistandið á sínu eigin lífi og er einkalífið, fjölskyldan og ofsakvíði aðeins brot af því sem kemur fram í uppistandinu. Það er augljóst að Ebba hefur húmor fyrir sjálfri sér og er þeim kostum gædd að geta litið á spaugilegu hliðina á lífinu þótt það geti oft reynst henni flókið og erfitt. Miðaverð er 2000kr. og ætti engin að láta þetta framhjá sér fara.
Uppistandið hefst klukkan 20.00 og er í rúma klukkustund.