Tix.is

Event info

Eitt af áramótaheitunum var að spila oftar með hljómsveitinni, til hvers að vera með bestu hljómsveit í heimi ef hún spilar ekkert opinberlega? Það er náttúrulega bara rugl. Svo er ég búinn að semja slatta nýjum lögum á íslensku sem við þurfum að fá að spila fyrir ykkur sem allra allra fyrst, hananú. En ekki of mikið í einu 2-3 lög max á tónleikum :-) annars verður maður bara ringlaður.

Í bandinu eru: Rósa Sveinsdóttir á Saxafón og raddir, Guðni Finnsson á bassa, Tobbi Sig á hljómborð, gítar og bakraddir, Arnar Gísla lemur trommurnar.

Sjáumst eldhress á tónleikunum.

Kveðja,

Mugison