Tix.is

Event info

IceWeb ráðstefnan verður haldin föstudaginn 22. febrúar 2019 á Hilton Hotel Nordica. Við hvetjum alla unnendur vefmála sem ætla að mæta á #iceweb2019 til að skrá sig sem fyrst á ráðstefnuna.

Aðalfyrirlesarar IceWeb 2019 verða þau Brad Frost og Magga Dóra.

Brad er vefhönnuður, ráðgjafi og rithöfundur, en bókin hans Atomic Design kynnir aðferðafræði til að búa til og viðhalda áhrifaríkum hönnunarkerfum.  

Magga Dóra hefur unnið í stafrænni vöruþróun frá því fyrir aldamót, bæði hérlendis og erlendis. Hún er með bakgrunn úr sálfræði og leggur því megináherslu á að notandinn sé í öndvegi og að hans upplifun verði árangursrík og helst ánægjuleg.

Ráðstefnan hefst 13.00 og stendur til 17.00. Húsið opnar kl 12.30.

Fyrirlesarar á IceWeb 2019:

James Elías Sigurðarson, Adversary

Orri Arnarsson, Sendiráðið

Pétur Jóhannes Óskarsson, WuXi

Rachel Salmon, Kolibri

Hrefna Lind Ásgeirsdóttir, Meniga

Magga Dóra, lykilfyrirlesari

Brad Frost, lykilfyrirlesari

Fundarstjóri er Ragnheiður H. Magnúsdóttir.

ATHUGIÐ: Vinsamlegast athugið að ef miði er keyptur á meðlimaverði þá verður viðkomandi skráður í félagið (sé hann ekki félagi fyrir) og rukkaður um árgjald (14.900 kr.)

-

FYRIRTÆKJAMIÐAR:

Ef þitt fyrirtæki vill kaupa miða og greiða með bankamillifærslu og fá reikning á kennitölu er best að senda póst á info@tix.is með upplýsingum um miðafjölda, kennitölu, síma og netfang kaupanda. Tix klárar greiðsluferlið með ykkur og sendir síðan miðana til ykkar á tölvupósti.

NEMAMIÐAR

Námsmönnum og einstaklingum utan vinnumarkaðar gefst tækifæri á að kaupa miða á ráðstefnuna á 6.990 kr. Til að fá þetta verð þarf að hafa samband við SVEF í gegnum tölvupóst á svef@svef.is.

-

Við minnum einnig á Íslensku vefverðlaunin sem fara fram seinna sama daga. Miðasala fer fram hér.

-