Tix.is

Event info

Hljómsveitin Valdimar gaf út sína fjórðu breiðskífu í september og ber platan heitið Sitt sýnist hverjum. Af því tilefni ætlar hljómsveitin að blása til tónleika á Græna Hattinum þann 26. janúar. Vegna mikilla anna hefur sveitin ekki komist norður til kynna plötuna fyrr en nú og er tilhlökkunin mikil í herbúðum sveitarinnar. Hljómsveitin hélt stórglæsilega útgáfutónleika í Háskólabíó í haust og það má reikna með að tónleikarnir á Græna Hattinum verði ekki síðri. "Frábær konsert og aldrei fyrr hefur hljómburðurinn í Háskólabíói verið fullkominn í mínum eyrum - þetta var sannkallað fimm stjörnu gigg." - Ásgeir Eyþórsson tónlistarspekúlant Nýja platan verður leikin í heild sinni en einnig þeirra þekktustu lög af fyrri plötum. "Þegar ég horfði á þessa hljómsveit í Háskólabíó í gær, samspilið og stemninguna gat ég ekki annað en hugsað um hversu dýrmætt það er að sjá svona hljómsveit." - Kristján Freyr tónlistarmaður