Tix.is

Event info

Fyrsta Kópavogsblót íþróttafélaganna Breiðabliks, HK og Gerplu verður haldið á bóndadaginn 25. Janúar 2019 í Kórnum í Kópavogi.

Húsið opnar kl. 18:30. Húsið lokar fyrir matargesti kl. 20:00 og hefst borðhald kl. 20:30. Húsið opnar kl. 23:00 fyrir ballgesti.

Þorrakóngurinn í Múlakaffi sér um matinn og þeir sem þora ekki í þorramatinn þá verður lambalæri ásamt meðlæti og pottréttur.

Veislustjóri er Jón Jónsson. Guðni Ágústsson er ræðumaður kvöldsins og Ari Eldjárn verður með uppistand. Stuðlabandið leikur svo fyrir dansi fram á rauða nótt.