Tix.is

Event info

Sáðu fræjum fyrir nýtt ár og vertu hjartanlega velkomin/n í kærleiksríka kakóathöfn með hugleiðslu, kröftugum öndunaræfingum, tónferðalagi með kristalskálum og gongi og djúpri slökun. Þetta er fullkomið tækifæri til að opna hjörtun okkar fyrir dýpri sjálfsást og kærleik til annarra og setjum okkur ásetning fyrir árið 2019. Við sköpum rými til að dýpka tenginguna inn á við og hlusta og heyra það sem hjartað hefur að segja okkur með aðstoð hjartaopnandi kakóbolla, kristalla, heilandi tóna, nærandi samveru og hóporku.

Athöfnin kostar 6500 krónur. Takmarkað pláss er í boði og því nauðsynlegt að kaupa miða fyrirfram. Ef einhverjar spurningar vakna er þér velkomið að hafa samband í gegnum tölvupóst á kamilla@kako.is.

Nokkur góð ráð fyrir athöfn:
-Borðaðu létta máltíð fyrir athöfn og helst nokkrum tímum áður en hún hefst. Það er líka í boði að fasta.
-Ekki er ráðlagt að drekka kaffi sama dag og athöfnin fer fram.
-Áfengi og kakó fara ekki vel saman og því ráðlagt að drekka ekki áfengi kvöldið áður.
-Klæðstu þægilegum fatnaði. Það eru dýnur, teppi og púðar á staðnum.
-Láttu mig vita ef þú tekur inn geð- eða hjartalyf og ég get ráðlagt þér hvort eða hversu mikið kakó gott er að drekka.
-Það er góð hugmynd að taka með orkustöng, ávöxt eða smá nasl til að hafa við höndina strax eftir að athöfn lýkur.

Kakóið sem við drekkum frá regnskógum Guatemala er svokallað “ceremonial grade cacao” og sannkölluð ofurfæða. Kakó er blóðflæðisaukandi, hefur jákvæð áhrif á úthald og orku, minnkar bólgur, ýtir undir framleiðslu á gleðiboðefninu serótónín, lækkar streituhormónið kortisól og örvar vellíðunarstöðvar í heilanum og framleiðslu á endorfíni. Hér má lesa nánar um kakó.

Kakóathöfnina leiðir Kamilla Ingibergsdóttir yogakennari en hún hefur stundað yoga og hugleiðslu um árabil. Hér má lesa meira um Kamillu.