Sigga Beinteins, Guðrún Gunnars og Jógvan Hansen snúa nú aftur með
tónleikana sína „Við eigum samleið - Lögin sem allir elska.“ í Salinn í
Kópavogi.
Það eru 7 ár síðan þríeykið blés til þessara
tónleika, þar sem gömlu góðu íslensku dægurlögin eru í öndvegi, og skemmst frá
því að segja að uppselt hefur orðið á hverja einustu tónleika í Salnum í
Kópavogi en fjöldi tónleikana þar eru farnir að telja á annan tuginn.
Einstaklega góð og ljúf stemmning hefur einkennt þessa tónleika, því
ekki aðeins syngja þau lögin sem allir elska og þekkja, heldur segja þau líka
skemmtilegar sögur sem tengjast lögunum, sögur úr bransanum og síðast en ekki
síst gera þau svo grín hvert að öðru.
Á dagskránni eru meðal annars
lögin : Við gengum tvö, Í landhelginni, Allt mitt líf, Kveiktu ljós, Bjartar
vonir, Fjórir kátir þrestir?ásamt fleiri perlum úr íslenskri dægurlagasögu.?
Þetta eru tónleikar sem enginn tónlistarunnandi ætti að láta fram hjá
sér fara.