Tix.is

Event info

Meistarar Dauðans fagna útgáfu plötunnar Lög þyngdaraflsins með útgáfutónleikum á Hard Rock Cafe í Reykjavík. Hún er önnur plata hljómsveitarinnar en fyrsta platan þeirra var tilnefnd til Íslensku tónlistarverðlaunanna 2015 sem Rokkplata ársins. Lög þyngdaraflsins fóru að mótast skömmu eftir útkomu fyrri plötunnar og voru tekin upp síðasta vetur. Nú komið að almennilegum útgáfutónleikum í höfuðborginni.
 

Meistarar Dauðans söfnuðu fyrir báðum plötum sínum á Karolinafund með góðum árangri. Þeir hafa spilað saman frá árinu 2011 en meðlimir hljómsveitarinnar sem þá voru aðeins 8 til 12 ára, eru nú 14 til 19 ára.  

Á útgáfutónleikunum verða Lög þyngdaraflsins flutt í heild sinni ásamt nokkrum vel völdum lögum af fyrri plötunni og jafnvel einhverju óvæntu efni. 

Á tónleikunum koma fram:

Ásþór Loki Rúnarsson: Gítar og söngur.
Albert Elías Arason: Bassi og raddir.
Þórarinn Þeyr Rúnarsson: Trommur og raddir.
Freyr Hlynsson: Hljómborð.
Esther Jökulsdóttir: Raddir

...og mögulega fleiri óvæntir gestir.