Tix.is

Event info

Tónskáldið og doktorinn Sigvaldi Kaldalóns átti litríka ævi. Hann tók við læknisembætti í einu afskekktasta læknishéraði landsins fyrir vestan. Víst var lífið þar ekki eins og í einföldum söngleik. Þrátt fyrir það samdi Sigvaldi margar af sínum helstu sönglagaperlum á Kaldalónsárunum. Nægir þar að nefna Ég lít í anda liðna tíð, Þú eina hjartans yndið mitt, Svanurinn minn syngur ofl. Rakin verður þessi litríka saga tónskáldsins fyrir vestan og fluttar helstu perlur hans. Leikurinn hefur verið sýndur í Hannesarholti í Reykjavík við einstaklega góðar viðtökur og smekkfullum sal trekk í trekk.

Höfundur/Leikari: Elfar Logi Hannesson

Hljóðfæraleikari: Sunna Karen Einarsdóttir

Lýsing: Magnús Arnar Sigurðarson

Leikmynd/Búningar: Marsibil G. Kristjánsdóttir

Leikstjórn: Þröstur Leó Gunnarsson