Tix.is

Event info

Jón Kr. í 60 ár - Tímamótatónleikar

Jón Kr. Ólafsson frá Bíldudal dægurlagasöngvari á 60 ára sviðsafmæli um þessar mundir og í tilefni af því verða haldnir tónleikar í hátíðarsal FÍH föstudaginn 15. febrúar kl 20:30. Jón.Kr er ljóðasöngvari af guðs náð og hefur komið víða við í íslensku tónlistarlífi síðustu áratugi við góðar undirtektir. Á tónleikunum verða fluttar klassískar söngperlur og dægurlög sem Jón Kr. hefur sungið í gegnum tíðina.

Auk Jóns mun hópur glæsilegra sönvara koma fram en það eru þau Ingimar Oddson, Kristján Jóhannsson, Kristín Sædal Sigtryggsdóttir, Geir Ólafsson, Gunnar Björn Jónsson, Guðmundur Karl Eiríksson, Anna Sigríður Helgadóttir og Hlöðver Sigurðsson.

Hljómsveitina skipa Pétur Valgard Pétursson gítar, Gunnar Hrafnsson kontrabassi, Tómas Guðni Eggertsson píanó og Matthías Stefánsson fiðla.
Kynnir verður Anna Sigríður Einarsdóttir.