Tix.is

Event info

Hljómsveitin ´85 hefur undanfarið vakið athygli og lof fyrir frábæran flutning á tónlist meistara David Bowie. Hljómsveitina skipa, Róbert Marshall, Þór Freysson, Hersir Sigurgeirsson, Gunz A La Tomma og Kristinn Gallagher. Bandið hefur síðustu ár spilað rjómann af því besta frá áttunni en undanfarið einbeitt sér að tónlist Bowie. Hljómsveitin flytur á þriðja tug laga sem spanna stórkostlegan feril þessa magnaða tónlistarmanns. Bowie aðdáendur og rokk-unnendur ættu alls ekki að láta þessa tónleika fara fram hjá sér.