Tix.is

Event info

ÓPERUDAGAR í samstarfi við Tarnarbíó kynna:

TROUBLE IN TAHITI eftir LEONARD BERNSTEIN

Sam og Dinah eru fyrirmyndarhjón sem búa í hinni fullkomnu úthverfaparadís. Undir fægðu yfirborðinu leynist þó veruleiki sem er á skjön við markaðsvædda ímyndina. Við fylgjumst með einum degi í lífi þeirra og tvísýnni atburðarás um framtíð hjónabandsins. Verkið er háðsádeiluverk sem endurspeglar poppmenningu 6. áratugarins í Bandaríkjunum og afhjúpar tálsýn ameríska draumins, heim samanburðar og neyslukapphlaups á kostnað ástarinnar.

Trouble in Tahiti verður nú sett upp í fyrsta sinn á Íslandi en tónskáldið Leonard Bernstein hefði orðið 100 ára á árinu. Óperan er aðeins tæp klukkustund að lengd og verður flutt á ensku.



Tónlistarstjóri: Gísli Jóhann Grétarsson

Leikstjóri: Pálína Jónsdóttir

Aðalhlutverk: Aron Axel Cortes og Ása Fanney Gestsdóttir

Jazztríó: Íris Björk Gunnarsdóttir, Gunnar Guðni Harðarson og Ragnar Pétur Jóhannsson

Hljómsveit: Hrönn Þráinsdóttir, Símon Karl Sigurðarson Melsteð, Þórður Hallgrímsson, Sigríður Hjördís, Örvar Erling Árnason, Aurora Erika Luciano og Ásthildur Helga Jónsdóttir

Framkvæmdastjórn: Guja Sandholt og Ása Fanney Gestsdóttir

Sýningarstjórn: Tinna Þorvalds Önnudóttir 


Styrktaraðilar: Reykjavíkurborg, Tónlistarsjóður og Norræni menningarsjóðurinn