Tix.is

Event info

Ýttu hér til að kaupa miða í Hofi, Akureyri.

ARG viðburðir í samstarfi við Kaffitár kynna með stolti:

Pálmi Gunnarsson - Yfir Fannhvíta Jörð

Það verða sannkölluð gleði og friðarjóla-stemming í Austurbæ 14. desember næstkomandi, þegar Pálmi Gunnars ætlar að syngja inn Jólin á fallegustu tónleikum landsins.

Þar ætlar Pálmi að taka öll sín bestu og vinsælustu jólalög ásamt nokkrum skemmtilega óvæntum slögurum.

Gleðin og léttleikinn verða að sjálfsögðu til staðar ásamt dassi af jólaandanum.

Ekki þarf að fjölyrða um tónlistarferil Pálma enda fáir íslenskir tónlistarmenn sem eiga jafnlangan og farsælan feril og hann.

Pálma til aðstoðar verður landslið hljóðfæraleikara ásamt nokkrum óvæntum gestum.

Miðaverð á tónleikana verður hófstillt og verður frá 5.500. Forsala miða hefst fimmtudaginn 20. Sept og verður inn á tix.is