Tix.is

Event info

Hljómahöll heldur áfram með tónleikaröðina Trúnó sem hófst síðast liðinn vetur og sló svo sannarlega í gegn. Magnús og Jóhann eru fyrstu listamennirnir sem eru tilkynntir en þeir verða á trúnó í Bergi í Hljómahöll fimmtudaginn 1. nóvember.


Magnús og Jóhann hafa gefið út fjölda laga sem allir landsmenn þekkja. Má þar á meðal nefna lögin Álfar, Söknuður, Blue Jean Queen, Jörðin sem ég ann, Í Reykjavíkurborg og Þú átt mig ein. Þetta verður kvöldstund sem enginn aðdáandi þeirra Magnúsar og Jóhanns ættu að láta framhjá sér fara.