Tix.is

Event info

Við fylgjumst með degi í lífi feðganna Einars Áskels og pabba hans, þar sem daglegt líf fær á sig ljóma ævintýrs, eins og tilvera okkar allra getur gert í einu vetfangi, ef við opnum fyrir leikinn, sköpunina og ímyndunaraflið. Einar Áskell veit fátt skemmtilegra en þegar pabbi hans tekur sér tíma og leikur við hann. Það næst skemmtilegasta er að fá að leika sér með verkfærakassann, en það er stranglega bannað og stórhættulegt að leika sér með sögina!