Tix.is

Event info

Frumsýnt 27. apríl.

Leikritið fjallar um undrabarnið Rolf Bæng, bjargvætt mannkyns - að eigin áliti. Björn Thors túlkar þetta einstaka undrabarn sem fæðist fullskapað; heiltennt og altalandi, og hans fyrsta verk er að heilla okkur öll upp úr skónum. Í augum foreldra sinna er Bæng óviðjafnanlegur í alla staði; saklaus og forvitinn drengur gæddur öllum hugsanlegum hæfileikum. 

Foreldrarnir eru víðsýnt, vel stætt og gott fólk sem er staðráðið í að ala upp óskabarn þjóðar. Ekkert getur hindrað Bæng í að ná á toppinn, hvorki konur né almenn velsæmismörk. Hann mun breyta heiminum - hvort sem okkur líkar það betur eða verr og hefst handa strax í móðurkviði þar sem hann ryður tvíburasystur sinni úr vegi. 

Bæng! er spánnýtt verk eftir eitt þekktasta núlifandi leikskáld Þýskalands, Marius von Mayenburg. Það er gegnsýrt af pólitískum tilfinningum og kolsvörtum húmor sem ekkert er heilagt.

 

Listrænir stjórnendur:

Höfundur: Marius von Mayenburg

Þýðing: Hafliði Arngrímsson

Leikstjórn: Gréta Kristín Ómarsdóttir

Leikmynd: Börkur Jónsson

Búningar: Eva Signý Berger

Lýsing: Björn Bergsteinn Guðmundsson

Tónlist: Garðar Borgþórsson

Myndband: Ingi Bekk

Leikgervi: Elín S. Gísladóttir

Hljóð: Garðar Borgþórsson 

Leikarar: Björn Thors, Brynhildur Guðjónsdóttir, Davíð Þór Katrínarson, Halldór Gylfason, Hjörtur Jóhann Jónsson o.fl.