Tix.is

Event info

Frumsýnt 10. janúar.

Síðastliðinn vetur fór Borgarleikhúsið aftur af stað með verkefni sem kallast NÚNA 2019. Leitað var til sex ungra höfunda um hugmyndir að 30 mínútna leikritum og urðu þrjár kraftmiklar og spennandi hugmyndir fyrir valinu. Höfundar þeirra eru Hildur Selma Sigbertsdóttir, Matthías Tryggvi Haraldsson og Þórdís Helgadóttir. Verk þeirra hafa síðan verið þróuð áfram í samvinnu við dramatúrga Borgarleikhússins og leikstjóra verkefnisins, Kristínu Jóhannesdóttur og verða sýnd saman á einu kvöldi. 

Höfundarnir fylgja í fótspor Tyrfings Tyrfingssonar, Kristínar Eiríksdóttur og Sölku Guðmundsdóttur sem ruddu brautina með NÚNA 2013 og hafa skipað sér í framvarðarsveit íslenskra leikskálda. 

Verkin:

Sumó

eftir Hildi Selmu Sigbertsdóttur

Rannveig og Axel ætluðu að hafa það huggulegt í bústað en samfélagsmiðlar koma upp um staðsetningu þeirra og hlutirnir taka óvænta stefnu. 

Hildur Selma útskrifaðist af sviðshöfundabraut Listaháskóla Íslands vorið 2018. 

Stóri Björn

eftir Matthías Tryggva Haraldsson

Stóri Björn er einbúi í heimi þar sem persónurnar heita furðunöfnum og kakkalakkar spyrja hvort seríósskálin á sviðinu sé mastersgráða, klámspóla eða „spirituality“. 

Matthías Tryggvi útskrifaðist af sviðshöfundabraut Listaháskóla Íslands vorið 2018 

Þensla

eftir Þórdísi Helgadóttur

Agnes er búin að fylla stofuna af hitalömpum og rakatækjum. En það er samt ekki út af þessu sem Egill er að skilja við hana. 

Þórdís Helgadóttir er menntuð í heimspeki, ritlist og ritstjórn í Háskóla Íslands og hefur starfað við ritstörf af ýmsu tagi.

 

Listrænir stjórnendur:

Höfundar: Hildur Selma Sigbertsdóttir, Matthías Tryggvi Haraldsson og Þórdís Helgadóttir

Leikstjórn: Kristín Jóhannesdóttir

Leikmynd og búningar: Stígur Steinþórsson

Lýsing: Þórður Orri Pétursson

Tónlist: Garðar Borgþórsson

 

Leikarar: Ebba Katrín Finnsdóttir, Haraldur Ari Stefánsson, Vala Kristín Eiríksdóttir, Þuríður Blær Jóhannsdóttir, o.fl.