Helena Eyjólfsdóttir, Friðrik Ómar Hjörleifsson, Karl Olgeirsson, Stefán Már Magnússon, Jón Rafnsson, Matthías Stefánsson, Hlín Erlendsdóttir, Laufey Pétursdóttir og Örnólfur Kristjánsson.
Helena Eyjólfsdóttir
með strengjum
Helena Eyjólfsdóttir sýnir á sér aðra hlið en flestir hafa heyrt og séð í gegn
um árin á þessum fyrstu Tíbrártónleikum vetrarins. Hún söng jú í mörg ár með
vinsælustu danshljómsveitum landsins; Atlantik kvartettinum, Hljómsveit
Ingimars Eydal og Hljómsveit Finns Eydal. Dagskrá kvöldsins mun samanstanda af
mörgum af hennar uppáhaldslögum frá rúmlega 60 ára söngferli, bæði úr
dægurlaga- og jazzdeildinni og verður yfirbragð tónleikanna bæði rólegt og rómantískt
og fullt af skemmtilegum sögum og minningum. Helena Eyjólfsdóttir gaf haustið
2016 út sína fyrstu og einu sólóplötu sem einfaldlega nefndist Helena og hlaut platan góðar viðtökur og
lof hlustenda og gagnrýnenda. Lagið Reykur vermdi toppstætin á vinsældarlista
Rásar 2 í átta vikur.
Sérstakur gestur á tónleikunum verður Friðrik Ómar Hjörleifsson og þeim til
fulltingis verður jazztríó og strengjakvartett sem með sínum órafmagnaða hljómi
mun fullkomna stemmninguna.
Efnisskrá:
Helena mun eins og áður sagði, flytja sín uppáhaldslög í glænýjum útsetningum
Karls Olgeirssonar og má þar m.a. nefna sígild lög sem fylgt hafa henni í gegn
um árin; Í rökkurró, Gettu hver hún er og Bel ami sem og lög af nýju plötunni;
Glitra gullin ský, Rós, Lúka af mold og Reykur svo einhver séu nefnd.
Helena hefur allan sinn feril sungið jazz og mun hún að sjálfsögðu flytja nokkur af sínum uppáhalds jazzlögum. Einstakt tækifæri til að sjá og heyra eina af okkar ástsælustu söngkonum.
Flytjendur: