Tix.is

Event info

Söngleikjaveisla í boði JáoK.is. Tekið verður á helstu söngleikjum og þeim gerð góð skil á þessum frábæru tónleikum. Allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi, alveg frá söngleikjunum Chess, Jesus Christ Superstar, Hárinu, Little Shop of Horrors og með The Greatest Showman ásamt fleirri söngleikjum. Það verður ekkert til sparað í frábæra útsetningu og frábæra framkomu stórsöngvara á borð við Siggu Eyrúnu, Þórunni Clausen ásamt Ívari Daníels og Jón Haukdals. Valinkunnir snillingar verða við hljóðfærin og er hljómsveitastjóri hinn eini sanni Helgi Reynir Jónsson. Bakraddir eru hin frábæru Arna Rún og Ragna Björg og Bjartmar Þórðarson. Sögumaður og kynnir er Eyvindur Karlsson. Láttu þig ekki vanta á þessa frábæru tónleika.