Tix.is

Event info

Laugardagskvöldið 13. október n.k. mun föngulegur hópur íslenskra tónlistarmanna stíga á svið á Græna hattinum og flytja tónlist Fleetwood Mac, einnar allra vinsælustu hljómsveitar rokksögunnar.

Hljómplatan Rumours kom út árið 1977 og sló sannarlega í gegn því hún sat í efsta sæti Billboard listans í Bandaríkjunum samfleytt í 7 mánuði. Rumours er fjórða söluhæsta hljómplata sögunnar og hefur selst í meira en 45 milljónum eintaka enda inniheldur hún ódauðleg lög eins og Don't Stop, Dreams, Go Your Own Way, Songbird og Second Hand News.

Á tónleikunum flytur hópurinn meistaraverkið Rumours í heild sinni ásamt úrvali vinsælustu laga Fleetwood Mac. Má þar nefna Little Lies, Black Magic Woman, Hold Me, Seven Wonders, Gypsy, Big Love og Rhiannon.

Um sönginn sjá RAGNHEIÐUR GRÖNDAL, SIGRÍÐUR THORLACIUS, MAGNI OG MARGRÉT EIR.

Hljómsveitina skipa Einar Scheving (trommur), Eiður Arnarsson (bassi), Kjartan Valdemarsson (hljómborð) og Kristján Grétarsson (gítar).

Þetta er í síðasta sinn sem þessi hópur kemur saman til að flytja RUMOURS og bestu lög FLEETWOOD MAC.