Tix.is

Event info


Í Tjarnarbíó á Reykjavík Fringe sýnir íslensk-breski leikhópurinn Rokkur Friggjar nýtt leikverk. Verkið heitir Forget-Me-Nots og gerist í Hvalfirðinum árið 1940.
Siggi og Gréta ólust upp saman. Þau spiluðu fótbolta saman, þau fóru á böll saman og þegar herinn kom, fóru þau að vinna í bröggunum saman. Svo kom Thomas.

Bæði Siggi og Gréta hrifust af myndarlega breska dátanum, en Siggi og Thomas áttu saman leyndarmál sem gæti breytt öllu.  

Leikritið er ástandssaga frá nýju sjónarhorni og sýnir ástarsamband milli tveggja karlmanna. Þessi hlið ástandsins hefur fengið litla sem enga umfjöllun, og hefur leikhópurinn lagt sig fram um að gera sína eigin rannsóknarvinnu meðfram æfingum.