Tix.is

Event info

Miðasala hefst í dag kl. 10:00!

The Chemical Brothers með tónleika á Íslandi

Breska hljómsveitin The Chemical Brothers hefur boðað komu sína til Íslands og mun koma fram á einum tónleikum í Laugardalshöll þann 20. október.

The Chemical Brothers er flestum tónlistarunnendum vel kunn enda hefur hún starfað frá árinu 1989 og á því tímabili meðal annars gef út 6 breiðskífur sem allar hafa ratað á toppinn á breska vinsældarlistanum.

The Chemical Brothers eru brautryðjendur á sviði raftónlistar en hafa þá sérstöðu innan þeirrar tónlistarstefnu að ná jafnt til aðdáenda hefðbundinnar rokk tónlistar sem svokallaðrar danstónlistar.

Tónleikar sveitarinnar eru mikið sjónarspil og er óhætt að segja að mögnuð tónleikaupplifun sé ein helsta ástæðan fyrir gríðarlegum vinsældum sveitarinnar.

Tónleikagestir í Laugardalshöll munu fá allan pakkann því The Chemical Brothers koma hingað með öll sín tæki og tól til að byggja upp sem magnaðasta upplifun fyrir íslenska aðdáendur.

Tónleikarnir fara fram í Laugardalshöll Laugardaginn 20. október.

Aldurstakmark: 18 ár