Tix.is

Event info

Nú leggja drengirnir í Dúndurfréttum aftur af stað eftir gott hlé og spila brot af því besta úr klassíska rokkinu. Allt gamla góða rokkið frá Led Zeppelin, Pink Floyd, Uriah Heep og Deep Purple verður á sínum stað en einnig lög víða að úr þessum klassíska rokkgeira. Mjög fjölbreytt blanda af allskonar rokki, mjúkt og hart þannig að allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi. Kvöldstund með Dúndurfréttum er ávísun á hlýjar minningar í minningabankann. Ást og rokk í einum pakka.