Tix.is

Event info

Dansandi ljóð er leiksýning þar sem ljóð, tónlist og hreyfingar sameinast í töfraheimi íslenskrar nútímakonu. Ævisaga hennar er sögð frá fæðingu til fullorðinsára á myndrænan, dramatískan og fyndinn hátt. Átta leikkonur túlka söguhetjuna, örlög hennar og ástir. Leikgerðin byggir á ljóðum eftir Gerði Kristnýju og tónlist eftir Margréti Kristínu Sigurðardóttur (Fabúlu).
Leikstjóri er Edda Þórarinsdóttir.

Sýningin er um klukkustund.

Afmælisafsláttur ef keypt er á báðar sýningar.

Leikhúslistakonur 50+ fagna nú fimm ára afmæli með tveim sýningum: Dansandi ljóð í janúar og Konur og krínólín í febrúar. Afmæliskort (gjafakort) á báðar sýningarnar kostar 7.000,- kr 

Hægt er að kaupa miða á báðar sýningarnar hér!