Bráðskemmtilegt og hjartnæmt verk um tvær kjarnakonur sem hafa alltaf þurft að hafa fyrir lífinu, en standa skyndilega frammi fyrir möguleikanum á að eignast svolítinn pening með auðveldum hætti. Það þarf kannski bara að svindla smá...
Leikkonurnar Anna Svava og Ólafía Hrönn sameina krafta sína í þessum nýja tvíleik eftir Marie Jones, höfund leikritsins Með fulla vasa af grjóti sem naut fádæma vinsælda í Þjóðleikhúsinu.